Lífskjarakönnun eftir landshlutum

Þriðjudaginn 01. febrúar 2000, kl. 19:13:31 (3820)

2000-02-01 19:13:31# 125. lþ. 53.4 fundur 264. mál: #A lífskjarakönnun eftir landshlutum# þál., Flm. ÞBack (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 53. fundur, 125. lþ.

[19:13]

Flm. (Þuríður Backman):

Herra forseti. Helsta verkefni þessa þings og næstu þinga er að snúa við þeirri byggðaröskun sem verið hefur undanfarin ár. Byggðaröskunin er ekki eingöngu vandi landsbyggðarinnar heldur landsins alls. Byggðaröskun er og verður ekki síður vandi höfuðborgarsvæðisins þegar fram líða stundir. Í raun hefur óeðlileg spenna á vinnumarkaði, eftirspurn eftir húsnæði og félagslegri þjónustu á höfuðborgarsvæðinu valdið sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu erfiðleikum við að uppfylla kröfur sem skapast hafa í íbúaþróun undanfarinna ára.

Í dag liggur fyrir heilmikil vitneskja um hvers vegna fólk flytur í svo ríkum mæli frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins eða frá dreifbýli í þéttbýli. Orsakir fólksflutninganna eru breyttir hættir í landbúnaði og fiskveiðum, fábreytt atvinnulíf, aukinn hluti þekkingar í framleiðslu og breytt gildismat fólks. En til þess að geta brugðist rétt við og snúið þessari óheillaþróun við þurfum við að skapa skilyrði til að styðja sérstaklega aðgerðir á afmörkuðum svæðum. Þar sem veruleg röskun er á atvinnuháttum og búsetu þurfum við að hafa enn betri þekkingu á ýmsum þáttum sem snúa að fólkinu sjálfu og kjörum þess.

[19:15]

Herra forseti. Því mæli ég fyrir till. til þál. um lífskjarakönnun eftir landshlutum. Tillagan er á þskj. 335 og er 264. mál þingsins. Flutningsmenn ásamt mér eru hv. þm. Árni Steinar Jóhannsson, Jón Bjarnason, Kolbrún Halldórsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson. Tillagan er svo hljóðandi:

,,Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra að láta gera ítarlega könnun á lífskjörum landsmanna, sundurliðaða eftir helstu þáttum og flokkaða eftir landshlutum þannig að marktækur samanburður fáist. Kannaðir verði allir sömu þættir og skoðaðir hafa verið í neyslukönnunum Hagstofu Íslands svo að nota megi hana til að meta framfærslukostnað fjölskyldna. Auk þess verði metnir allir helstu þættir sem áhrif hafa á almenn lífskjör, svo sem laun, verðlag, kostnaður við skólagöngu barna og ungmenna, kostnaður við heilbrigðisþjónustu og samgöngur, húshitunarkostnaður og aðgangur að almennri þjónustu.``

Óþarft er að tíunda þá miklu umræðu sem farið hefur fram að undanförnu um byggðaþróun á Íslandi. Í þeirri umræðu hefur hins vegar náðst sá mikilsverði áfangi að nú er orðið viðurkennt að þessi mikla byggðaröskun er ekki einungis vandi landsbyggðarinnar heldur landsins alls. Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um sérstakar aðgerðir í byggðamálum, á þskj. 10, 10. máli þingsins, þar sem fram koma hugmyndir þingflokksins um almennar aðgerðir í þessum málaflokki. Ljóst er að til viðbótar almennum aðgerðum verða að koma staðbundnar aðgerðir miðaðar við aðstæður í einstökum byggðarlögum.

Í skýrslu sem Stefán Ólafsson vann fyrir Byggðastofnun um orsakir búferlaflutninga á Íslandi og gefin var út í nóvember 1997 kemur fram að einn helsti orsakavaldur byggðaröskunarinnar er mismunur á launakjörum og vöruverði milli landshluta. En þar að auki er nauðsynlegt að átta sig á því hvernig einstök byggðarlög eru í stakk búin til að tryggja almenna velferð íbúanna. Aðgangur að hvers kyns félagslegri þjónustu er snar þáttur í almennum lífskjörum og er vissulega misjafn eftir byggðarlögum. Nauðsynlegt er að draga þennan mun fram og í kjölfarið að stuðla að sem jöfnustum rétti allra landsmanna í þessum efnum sem öðrum.

Til að bregðast markvisst við þessum vanda er nauðsynlegt að vinna úr traustum grunnupplýsingum. Mikilvægt er að fá fram vandaða skýrslu um alla þá þætti sem skapa aðstöðumun milli byggðarlaga þannig að í ljós komi til hvers konar aðgerða þarf að grípa á hverju svæði. Sem stendur liggja þessar upplýsingar ekki fyrir þótt finna megi ýmsar vísbendingar um ástand mála í eldri skýrslum. Þar má helst nefna síðustu neyslukönnun Hagstofu Íslands, sem unnin var árið 1995, og ýmsar tölfræðilegar upplýsingar frá sama ári sem fram koma í skýrslu þróunarsviðs Byggðastofnunar um forsendur stefnumótandi byggðaáætlunar 1999--2002.

Í neyslukönnun Hagstofunnar árið 1995 kom fram talsverður munur á meðalársútgjöldum heimila eftir búsetu. Meðalútgjöld heimilis á höfuðborgarsvæðinu voru 2.309.091 kr., í öðru þéttbýli 2.429.970 kr. og 1.985.888 kr. í dreifbýli. Jafnframt kom í ljós að meðalstærð heimila er mjög mismunandi eftir búsetu. Á höfuðborgarsvæðinu var hún að meðaltali 2,65 en 3,0 í öðru þéttbýli og 3,4 í dreifbýli. Helstu atriði í neysluvísitölunni eru sett upp í töflu sem flokkuð eftir búsetu og birt er með greinargerðinni.

Í töflunni sést að í dreifbýli eru útgjöld til kaupa á mat og drykkjarföngum mun stærri liður í neyslunni en í þéttbýlinu og sama má segja um ferða- og flutningskostnað. Þarna eru vísbendingar um aðstöðumun en flokkunin er allt of gróf til að nokkuð megi af henni ráða um einstök svæði. Vitað er að kostnaður við framhaldsnám unglinga er mikill þar sem sækja verður menntunina í önnur byggðarlög. Sama máli gegnir um húshitunarkostnað á svokölluðum köldum svæðum landsins. Á þessum sviðum og fleirum er verulegur aðstöðumunur sem hefur mikil áhrif á viðhorf fólks til búsetu á tilteknum svæðum. Þetta kemur bæði fram í fyrrnefndri skýrslu sem unnin var af Stefáni Ólafssyni og heitir Búseta á Íslandi og í nýrri skýrslu Byggðastofnunar sem nefnist Byggðir á Íslandi. Í þeirri síðarnefndu er sérstaklega lögð áhersla á nauðsyn þess að grípa til sértækra svæðisbundinna aðgerða í þeim byggðarlögum sem standa hvað höllustum fæti í dag.

Eins og áður sagði eru heildarútgjöld heimilanna í dreifbýli að meðaltali talsvert lægri en í þéttbýli. Það verður að sjálfsögðu að skoða í samhengi við tekjuskiptingu landsmanna. Í fyrrnefndri skýrslu um þróunarsvið Byggðastofnunar kemur fram að meðaltekjur árið 1995 voru mjög mismunandi eftir landsvæðum. Til að mismikil atvinnuþátttaka skekki ekki myndina eru reiknaðar meðaltekjur á íbúa. Þá kemur í ljós að tekjur á íbúa voru hæstar í Ísafjarðarsýslu og Vestmannaeyjum. Nánari sundurliðun sýnir þó að á Vestfjörðum og víðar þar sem sjávarútvegur vegur þungt eru það háar tekjur sjómanna sem hækka meðaltalið en að þeim slepptum eru meðallaun lág. Lægstar voru tekjurnar í Vestur-Skaftafellssýslu, í Dalasýslu og í Reykhólasveit. Frávik frá landsmeðaltali og hlutfallsleg breyting á fjölda ársverka eftir landsvæðum sl. 10 ár voru eins og segir í töflu í grg. sem tekur til margra sveitarfélaga á landinu. Hún sýnir umtalsverð frávik.

Af framansögðu má ljóst vera að þörfin fyrir þá upplýsingasöfnun sem gert er ráð fyrir í tillögunni er brýn svo að hægt sé að sporna við byggðaröskuninni með markvissum aðgerðum sem taka mið af aðstæðum í hverju byggðarlagi.

Herra forseti. Íbúaþróunin og byggðaröskunin heldur áfram eins og síðustu ár. Ekkert virðist hafa dregið úr fækkun í hinum dreifðu byggðum og þéttbýli á landsbyggðinni. Það þarf að koma til markvissra aðgerða þegar á þessu ári svo sveitum landsins verði bjargað frá auðn í nánustu framtíð. Fólk verður að finna von og fá trú á þeim möguleikum sem landsbyggðin hefur upp á að bjóða. Til að svo verði þarf þegar að bregaðst jákvætt við ef við viljum halda byggð í landinu. Það er okkur öllum til heilla að sameinast um leiðir til þess að stöðva fólksflóttann og treysta eðlilega íbúaþróun utan höfuðborgarsvæðisins í náinni framtíð. Einhverjir mundu e.t.v. segja að nú sé beðið um enn eina skýrsluna og vissulega er það. En þessi þáltill. er byggð nýlegri úttekt Byggðastofnunar. Hún nefnist Byggðir á Íslandi, aðgerðir í byggðamálum. Þar er hvatt til þess frekari skoðunar á þeim þáttum sem hér hafa verið nefndir til að aðgerðir stjórnvalda verði markvissari.

Ég ætla að vona að það dragist ekki að afgreiða þessa þáltill. í nefndinni sem fær hana til skoðunar. Eitt er þó víst. Í allt of mörgum byggðarlögum vítt og breitt um landið ríkir vonleysi, deyfð og svartsýni sem er bráð nauðsyn á að vinna bug á. Byggðir landsins geta og ættu að eiga sér bjarta framtíð. Það gerist hins vegar ekki af sjálfu sér.

Herra forseti. Ég óska eftir því að þessari þáltill. verði annaðhvort vísað til allshn. eins og kom fram í upphafi þáltill. þar sem er vísað til Hagstofu Íslands og úttektar hjá henni eða til iðnn. þar sem Byggðastofnun var flutt undir þá nefnd um áramót.