Einar Oddur Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Ég tók þetta bara eins og segir í grg., að flutningsmaður væri að segja eins og hér stendur: ,,Ekki verði hróflað við aflamarkskerfinu.`` (Gripið fram í.) Nú, það stendur hér í grg. með tillögunni, þannig að ég taldi það vera skoðun hans úr því að það stóð þarna.
Hins vegar er ég alveg sammála honum í því að það er alveg sama hvernig við takmörkum aðhaldið og hvernig við takmörkum aðganginn að fiskimiðunum að við það verður til verðmæti að sjálfsögðu. Ég hef líka heilmiklar meiningar um það hvernig á að fara með slíkt verðmæti. Ég er hræddur um að ég og hv. flutningsmaður séum kannski ekki alveg sammála um það en það skiptir þá ekki meginmáli.
Ég vildi bara nota þetta tækifæri til að vekja athygli á því að ég hef verið sannfærður um að þessi umræða væri á villigötum í þjóðfélaginu vegna þess að það skiptir miklu meira máli að ræða það á hvaða villigötum við erum að leiðast með þessu aflamarkskerfi heldur en hitt hvernig við förum með einhvern hugsanlegan arð sem kann að myndast. Það getur verið eilífðarvandamál. Aðalmálið er það að við séum ekki að vinna gegn hagsmunum okkar og framtíðarinnar með þeirri skipan sem við höfum.