Jóhann Ársælsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Það er nákvæmlega af þessu sem ég hef áhyggjur. Menn ætla að bíða dóms Hæstaréttar. Menn virðst farnir að treysta á það að heimsendaspár hæstv. forsrh. og spár um það hvernig fari ef eignarhaldinu verði hnekkt á veiðiheimildunum á Íslandsmiðum verði til þess að Hæstiréttur hrekist frá því að komast að sömu niðurstöðu og komist var að í Héraðsdómi Vestfjarða og Hæstiréttur komst að í dómi sínum um 5. gr. laganna um stjórn fiskveiða fyrir ári. Ég verð að segja að mér finnst dapurlegt að menn ætli sér að bíða þess dags að þessi dómur verði felldur. Þann dag munu menn ekki hafa sömu möguleika til að fá aðlögunartíma handa útgerðinni á Íslandi að nýju kerfi eða breyttu stjórnkerfi fiskveiðanna.