Forseti (Halldór Blöndal):
Þá hefur borist svofellt bréf, dags. 4. febrúar 2000:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér, með vísan til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp, að óska þess að 1. varaþingmaður Sjálfstfl. í Vesturl., Helga Halldórsdóttir skrifstofumaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Sturla Böðvarsson, 1. þm. Vesturl.``
Kjörbréf Helgu Halldórsdóttur hefur verið samþykkt en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.
\vskip 11.6pt plus 6pt minus 6pt