Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):
Herra forseti. Ég tók undir það á þessum fundi og lýsti því yfir að ég gæti vel skilið að menn hefðu áhyggjur af þessum breytingum. Því miður er það svo að við höfum séð t.d. vaxandi magn fíkniefna í umferð þannig að það er ósköp skiljanlegt að fólk hafi áhyggjur og vilji tryggja sem besta löggæslu.
Ég taldi reyndar skynsamlega tillögu sem kom fram í þessu máli um að sértakt teymi yrði myndað milli aðila þarna í bænum sem lögreglan tæki þátt í. Það gæti komið inn í svokallaða grenndargæslu sem ég tel að sé mjög gott mál og þarft í þessum tilvikum, sérstaklega til þess að fylgjast með börnum og unglingum og þar er ég að tala um samstarf milli t.d. skóla, íþróttafélaga, kirkju og lögreglu.
Varðandi þessar tillögur vildi ég koma til móts við þá umræðu sem þarna átti sér stað og þessar áhyggjur manna. Ég taldi því rétt að sýslumaðurinn mundi beita sér fyrir því að halda fundi þar sem yrði farið yfir þetta mál og eins að ríkislögreglustjóri mundi gera úttekt á því hvernig þessar breytingar hefðu reynst eftir sex mánuði.