Öryggismál á hálendi Íslands

Mánudaginn 07. febrúar 2000, kl. 15:26:21 (4047)

2000-02-07 15:26:21# 125. lþ. 57.2 fundur 282#B öryggismál á hálendi Íslands# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur, 125. lþ.

[15:26]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):

Herra forseti. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki heyrt umræðu um þetta mál hvað snertir málefni löggæslu og dómsmrn. Auðvitað vita allir að það er stríður ferðamannastraumur á marga staði og því miður misjöfn umgengni manna sums staðar en ég mun að sjálfsögðu leita eftir upplýsingum um þetta mál og athuga hvort einhverjar kvartanir hafi borist til umhvrh. frá þeim aðilum sem gegna þessum störfum.