Landsvirkjun

Fimmtudaginn 10. febrúar 2000, kl. 12:52:36 (4206)

2000-02-10 12:52:36# 125. lþ. 61.5 fundur 198. mál: #A Landsvirkjun# (aðild að fjarskiptafyrirtækjum) frv. 14/2000, HjÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 61. fundur, 125. lþ.

[12:52]

Hjálmar Árnason (andsvar):

Herra forseti. Það gleður mig að fögnuður hv. þm. skuli vera mikill. Ég held ekki þurfi að hafa miklu fleiri orð um það að Landsvirkjun væri aldrei stætt á öðru en bjóða þetta út og gefa fyrirtækjum jafnan kost á því að fara þarna inn. Annað stenst ekki samkeppnislög. Ég held að þau muni nú tryggja það, auk almenns vilja í samfélaginu. En þetta er spennandi verkefni sem iðnn. mun fara í saumana á.