Halldór Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Það hefur komið fyrir að unnt hefur verið að gera ráðstafanir til þess að stöðva framkvæmdir í virkjunarmálum ef ég man rétt. Ég held að dugað hafi að skipa iðnrh. úr röðum Alþfl. og þá hafi það verið tryggt að engin stórvirkjun fannst og ekki var ráðist í neina álverksmiðju. Er þetta ekki rétt, hv. þm.?