Atkvæðagreiðsla um skýrslubeiðni

Miðvikudaginn 16. febrúar 2000, kl. 13:45:26 (4398)

2000-02-16 13:45:26# 125. lþ. 64.92 fundur 316#B atkvæðagreiðsla um skýrslubeiðni# (um fundarstjórn), Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 64. fundur, 125. lþ.

[13:45]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Það kom skýrt fram í athugasemd hv. þm. Halldórs Blöndals, forseta Alþingis, að hann óskaði eftir því að þetta mál yrði tekið út af dagskrá í dag vegna þess að hann vildi skoða það örlítið nánar. Það getur verla verið mikill ágreiningur um það þó að svona mál frestist um einn dag eða svo.