Karl V. Matthíasson f. SighB

Fimmtudaginn 17. febrúar 2000, kl. 10:32:44 (4436)

2000-02-17 10:32:44# 125. lþ. 66.95 fundur 325#B Karl V. Matthíasson f. SighB#, Forseti ÍGP
[prenta uppsett í dálka] 66. fundur, 125. lþ.

[10:32]

Forseti (Ísólfur Gylfi Pálmason):

Borist hefur svofellt bréf, dags. 16. febrúar 2000:

,,Þar sem ég get ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur vegna læknisaðgerðar leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþingmaður Samfylkingarinnar í Vestf., Karl V. Matthíasson sóknarprestur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Sighvatur Björgvinsson, 2. þm. Vestf.``

Karl V. Matthíasson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og er boðinn velkominn til starfa.