Jón Bjarnason:
Herra forseti. Hér er til umræðu till. til þál. um vegáætlun fyrir árin 2000--2004. Ég vil í upphafi láta sérstaklega í ljós ánægju með hversu vel tillögur til vegáætlunar eru unnar og hefur svo verið um nokkra hríð þar sem gerð er langtímaáætlun sem jafnframt fylgir kostnaðargreining á einstökum framkvæmdum. Þessi vinnubrögð eru til fyrirmyndar og er mun þægilegra að meta og ræða framkvæmdir, áherslur og jafnvel áherslubreytingar út frá svo vel unnum tillögum.
Á þeim tíma sem við höfum til umráða til að fjalla um till. til þál. um vegáætlun gefst ekki tími til að fara í gegnum öll þau atriði sem þyrfti en það verður þá gert nánar í nefnd.
Herra forseti. Ég vil þó vekja athygli á að allir aðilar sem fjalla um byggðamál á Íslandi eru sammála um að góðir vegir eru forsenda fyrir öflugri byggð og oft og tíðum er talað um að bættar vegasamgöngur séu best til þess fallnar að styrkja byggðina. Undanfarin ár hefur megináhersla verið lögð á að tengja þéttbýlisstaðina saman. Höfuðáhersla hefur verið lögð á hringveginn og aðalstofnvegina sem tengja saman þéttbýlin og það er vel og afar mikilvægt. Hins vegar hefur það aftur gerst að vegir sem liggja utan þessara meginvega hafa dregist aftur úr miðað við það sem áður var. Hlutfallslega hefur ekki verið varið eins miklu fjármagni til þeirra og annarra vegaframkvæmda. Þetta var einmitt dregið fram í byggðaáætlun sem Alþingi samþykkti á vordögum 1999, þ.e. að gera þyrfti sérstakt átak í til að bæta samgöngur út um byggðir landsins.
Herra forseti. Þetta er svo aftur áréttað í tillögum Byggðastofnunar frá í haust þar sem segir berum orðum að eitt mikilvægasta verkefnið til að takast á við sé að styrkja vegi í jaðarbyggðum, í byggðum sem standa höllustum fæti og jafnframt þar sem vegasamgöngur eru lélegastar.
Herra forseti. Byggðastofnun lagði einmitt fram á haustdögum tillögur eða hugmynd að sérstöku aukaátaki varðandi þessa vegaflokka. Hún lagði til, að mig minnir, að lagðir yrðu allt að 5 milljarðar kr. til viðbótar við þá föstu tekjustofna sem Vegagerðin hefur til átaks á þessum vegum sem gætu skipst á næstu tíu ár. Ég leyfi mér því, herra forseti, að spyrja: Hvað líður þessu átaki sem var bæði boðað í þáltill. forsrh. sem samþykkt var á vordögum og þeirri tillögu sem Byggðastofnun hefur gert varðandi uppbyggingu þessara vega?
Herra forseti. Við þekkjum öll mikilvægi þessara vega fyrir þjónustu við byggðir í landinu eins og daglegan skólaakstur um langan veg. Verið er að fækka skólum og það þýðir að aka þarf nemendum lengri leið. Það er mikilvægt fyrir fólk að geta komist til vinnu sinnar og eðlilegt og ekki hvað síst ber að nefna ferðaþjónustuna en vaxandi ferðaþjónusta krefst einmitt góðra vega. Samfara aukningu ferðamanna og aukningu tekna þjóðfélagsins af ferðamönnum í landinu --- á liðnu ári er talað um að aukning gjaldeyristekna þjóðarinnar hafi kannski numið einum 4--6 milljörðum kr. --- væri því afar sanngjarnt, herra forseti, að auknu fé yrði einmitt varið til þess að styrkja ferðamannaleiðir og ferðaþjónustu. Fólk getur þurft að aka í rykmekki eftir holóttum og hörðum vegum. Í fyrsta lagi fækkar því fólki sem kann að aka slíka vegi og í öðru lagi er það lítið notalegt í sumarfríinu. Svona háttar ekki aðeins til utan byggðar. Þetta á líka við um vegi heim til ferðaþjónustubænda og náttúruperlna í byggð. Hver mundi t.d. trúa því að ekki sé hægt að komast að hinu stórkostlega Borgarvirki í Vestur-Húnavatnssýslu, þessari náttúru- og söguperlu, nema um hásumarið eða þegar langt er liðið á sumar vegna þess að vegurinn er ekki fær þangað.
Herra forseti. Það er réttmætt draga þetta sérstaklega fram enda er líka í þessari vegáætlun einmitt dregið fram að viðhald, endurbætur og framkvæmdir á þessum vegum eru of litlar miðað við þarfir. Má ég, herra forseti, vitna í þáltill. Þar stendur einmitt um tengivegina:
,,Lagt er til að fjárveiting til tengivega árið 2000 verði 436 millj. kr. en hækki í 475 millj. árið 2004.``
Síðan stendur í þáltill.:
,,Fjárveitingar til þessara vega hafa að undanförnu verið langt undir því sem vera þyrfti.``
Herra forseti. Það sama er sagt um safnvegina sem eru jú vegir heim á bæina:
,,Veruleg þörf er á auknu fjármagni til þessara liða.``
Því er alveg ljóst að ábyrgðaraðilar vegaframkvæmda í landinu gera sér fulla grein fyrir því að fjármagn til þessara vega hefur dregist verulega saman og virkileg þörf og reyndar þjóðarnauðsyn er á því að framkvæmdir og fjármagn til þessara vega verði aukið.
Við í þingflokki Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs höfum einmitt lagt þunga áherslu á þetta í tillögu okkar til aðgerða í byggðamálum þar sem við höfum lagt til að gert verði stórátak í að bæta vegina út um byggðir landsins. Við lögðum einnig til við afgreiðslu fjárlaga nú fyrir jól að sérstöku fjármagni væri varið til þessa.
Herra forseti. Ég leyfi mér því að segja hér að verði ekki nú gert skipulagt stórátak í fjármögnun á þessum vegum sem hafa dregist svo aftur úr hlutfallslega, þá beri að skoða það að breyta vegáætlun þannig að fjármagn til þessara vega verði aukið.