Jón Kristjánsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. hefur oftúlkað ræðu mína. Ég var ekki að tala um að tengja vegaframkvæmdir ríkiseignum sem væntanlega verða seldar í framtíðinni. Ég ræddi um að við eigum töluverða fjármuni vegna þeirrar sölu ríkiseigna sem fram hefur farið. Ég hygg að þar sé um að ræða um 10 milljarða kr. a.m.k. sem eftir er að fjalla um ráðstöfun á. Ég skal ekkert segja um hve miklu af því fé yrði varið til samgöngumannvirkja.
Ég tel eðlilegt að þegar eignir eru seldar sé andvirðinu varið til annarra fjárfestinga. Ég tel ekki eðlilegt að verja sölu eigna í rekstur ríkissjóðs og rekstrarverkefni. Ég tel eðlilegt að verja þeim til annarra fjárfestinga á vegum ríkisins. Þetta mál verður til umræðu hér í framhaldinu. Hv. þm. hefur misskilið mig ef hann heldur að ég hafi verið að tengja þetta mál sérstaklega sölu ríkiseigna sem eftir á að ráðast í. Það er ekki svo.