Margrét K. Sverrisdóttir:
Virðulegi forseti. Svört skýrsla Rauða krossins er enn ein köld gusa framan í þá ríkisstjórn sem sífellt klifar á góðæri, stöðugleika og efnahagsuppsveiflu en stjórnar svo með þeim hætti að bil milli ríkra og fátækra eykst stöðugt hér á landi. Samkvæmt skýrslu Rauða krossins eru bótaþegar einn sá hópur sem býr við hvað bágust kjör og ég vil beina athyglinni sérstaklega að þeim í þessu stutta innleggi mínu.
Herra forseti. Eins og staðan er í dag má fullyrða að ýmsar stjórnvaldsaðgerðir komi beinlínis í veg fyrir menntun og atvinnuþátttöku öryrkja. Þar á ég við jaðarskatta og tekjutengingar og þeir ráðamenn sem ákvarða öryrkjum jafnlágar bætur og raun ber vitni verða að horfast í augu við að með því eru þeir að útiloka þá frá eðlilegri þátttöku í samfélaginu og skerða þar með framtíðarmöguleika þeirra. Það eru ekki einungis bótaþegarnir sjálfir sem eru einangraðir frá þátttöku í samfélaginu vegna fátæktar heldur bitna slíkar aðstæður iðulega hart á börnum bótaþega sem vegna aðstæðna fá ekki notið tómstundastarfs eða annars sem börn hinna betur settu geta nýtt sér.
Forsenda góðs aðbúnar fjölskyldna á Íslandi er oftast mikil vinna og langur vinnudagur. Bótaþegar geta fæstir unnið langan vinnutíma og þaðan af síður yfirvinnu og eiga því minni möguleika á að eignast húsnæði en aðrir.
Herra forseti. Nú er svo komið að miklum meiri hluta þjóðarinnar ofbýður þau kjör sem allir vita að öryrkjar og ellilífeyrisþegar búa við og hefur þjóðin lýst sig reiðubúna til að axla hærri skatta til að þeir megi lifa mannsæmandi lífi og þá er nú mikið sagt í þessu skattpínda landi. Framsókn hefur haft slagorðið ,,Fólk í fyrirrúmi`` og ég vil gjarnan fá að vita hvaða fólk það er sem Framsókn vill hafa í fyrirrúmi. Þó svo hæstv. forsrh. haldi öðru fram, þá hafa bótaþegar misst af góðærinu því sú ríkisstjórn sem nú situr skarar eld að köku kvótaþega á meðan bótaþegar mega éta það sem úti frýs.