Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég held að ekki sé rétt að kveða upp neinn dóm um niðurstöður í þessu máli. En þær tillögur sem ég hef sett fram eru alveg skýrar og klárar. Hér hafa komið fram athugasemdir en ég hef hins vegar vakið athygli á því að fram undan eru vonandi meiri framkvæmdir á Austurlandi en í nokkrum öðrum landshluta þannig að við getum ekki bæði sleppt og haldið.