Fátækt á Íslandi

Mánudaginn 21. febrúar 2000, kl. 15:10:33 (4580)

2000-02-21 15:10:33# 125. lþ. 67.1 fundur 327#B fátækt á Íslandi# (óundirbúin fsp.), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur, 125. lþ.

[15:10]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Það er alveg rétt hjá hæstv. forsrh. að hér er vandasöm umræða á ferðinni og hún er tilfinningarík vegna þess að hér er á ferðinni viðkvæmt mál. Þess vegna er það skiljanlegt að forsvarsmenn Öryrkjabandalagsins reiðist fyrir hönd félagsmanna sinna þegar þeim er líkt við smælingja. Og það er staðreynd að hæstv. forsrh. var óheppinn í orðavali í umræðunni um daginn þegar hann setti saman í eina spyrðu vanda sem sprytti af óhöppum, slysum og fjármálaóreiðu.