Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég ætla að nefna eitt atriði af fjölmörgum sem hv. þm. gat um, það var um kynningu á ritum og lögum. Ég vil halda því fram að sú lagasetning sem forsrn. hefur beitt sér fyrir að undanföru, eins og stjórnsýslulög og upplýsingalög, hafi verið kynnt með algjörlega nýjum og sérstökum hætti. Haldin voru námskeið og ráðstefnur fram og til baka um stjórnsýslulögin. Gefnar voru út bækur um stjórnsýslulögin, bæði stærri rit og minni rit. Gefnar voru út fróðlegar bækur um upplýsingalögin og dreift mjög víða. Satt best að segja fengum við klapp á bakið fyrir þessa starfsemi alla því það var mjög óvenjulegt að ráðuneyti stæði fyrir svo umfangsmikilli útgáfu- og kynningarstarfsemi í kjölfar lagasetningar. Við höldum þessu eiginlega áfram með þessu framtaki hér í dag, með því að koma þessu í að vísu ódýra en aðgengilega bók til að þessi umræða fari ekki fyrir lítið, hún haldist og dragi að sér athygli. Við teljum að þetta sé athyglisvert og leiði til bættra stjórnsýsluhátta.
Varðandi stjórnsýslulögin og upplýsingalögin fór fram ein víðtækasta kynning sem framkvæmdarvaldið hefur staðið fyrir á löggjöf sinni í framhaldi af slíkri starfsemi. Ég held til að mynda að upplýsingalögin, svo maður nefni þau, virki mjög vel. Þeir sem þurfa á þeim að halda eiga mjög gott með ná fram rétti sínum hvað það varðar. Stjórnsýslulögin voru jafnframt afar vel kynnt enda var það nauðsynlegt. Þetta var algjörlega nýtt. Bæði voru þau vel kynnt inn á við gagnvart ráðuneytunum og starfsmönnum þeirra en jafnframt út á við með miklu námskeiðahaldi, hvers kyns uppákomum og síðan útgáfu. Þetta vildi ég nefna af mörgu öðru sem kom reyndar fram í ræðu hv. þm.