Þriggja fasa rafmagn

Miðvikudaginn 23. febrúar 2000, kl. 13:54:24 (4731)

2000-02-23 13:54:24# 125. lþ. 70.12 fundur 355. mál: #A þriggja fasa rafmagn# fsp. (til munnl.) frá iðnrh., Fyrirspyrjandi HErl
[prenta uppsett í dálka] 70. fundur, 125. lþ.

[13:54]

Fyrirspyrjandi (Helga A. Erlingsdóttir):

Virðulegi forseti. Ég lýsi ánægju með að hæstv. iðnrh. sé búinn að koma af stað vinnu um þessi mál. Ég legg bara áherslu á að þessum málum verði hraðað sem frekast er unnt --- mér finnst liggja á --- þannig að sem allra flestir sitji við sama borð hvað varðar aðgang að þrífasa rafmagni. Ég þakka allar þær undirtektir sem ég hef fengið hér við þetta mál.