Rannveig Guðmundsdóttir:
Herra forseti. Þegar ég spurði hvort umhvrh. hafi undirbúið það að þetta mál færi hratt í gegnum þingið, m.a. með því að vinna það með náttúruverndarsamtökum, þá dugir ekki að drögin hafi verið send til þeirra. Þeim drögum var breytt hjá umhvrn.
Ég ætla líka að nefna bráðabirgðaákvæðið. Gagnrýnin beinist að því að hafa ekki notað tímann, rúmt ár sem málið er búið að liggja í ráðuneytinu, til að breyta. En ef þetta var tveggja ára ákvæði þá skil ég náttúrlega að þetta verður ekki fyrr en að þremur árum eftir að frv. var skilað til umhvrn.
Það eru engin svör við því hvað lagt hefur verið til grundvallar við mat á því hvort framkvæmdir verði hafnar, það er óviðunandi ákvæði. Umhvn. verður að skoða og skilgreina hvaða virkjanaframkvæmdir er þar um að tefla.