Jöfnun námskostnaðar

Mánudaginn 06. mars 2000, kl. 15:18:34 (4898)

2000-03-06 15:18:34# 125. lþ. 72.2 fundur 353#B jöfnun námskostnaðar# (óundirbúin fsp.), SvanJ
[prenta uppsett í dálka] 72. fundur, 125. lþ.

[15:18]

Svanfríður Jónasdóttir:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir svörin og fagna því að hann hyggst láta fara fram endurskoðun á þessum lögum.

Það er alveg rétt sem kemur fram hjá honum að þó nokkrar breytingar eru að verða á framhaldsskólastiginu nú með nýjum lögum og nauðsynlegt að mæta þeim með því að endurskoða þá jafnframt þau lög sem um ræðir, lögin um jöfnun námskostnaðar, til að nemendur geti nýtt sér þá valkosti sem uppi verða.