Svar við fyrirspurn

Þriðjudaginn 07. mars 2000, kl. 13:39:05 (4969)

2000-03-07 13:39:05# 125. lþ. 73.96 fundur 361#B svar við fyrirspurn# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur, 125. lþ.

[13:39]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill í tilefni þessarar umræðu minna á að álitamál af þessum toga eru ekki ný af nálinni, þau hafa komið upp áður. Forseti vill minna á að svör ráðherra eru auðvitað fyrst og síðast á ábyrgð þeirra. Forseti hefur hins vegar hlustað á ábendingar hv. þm. og mun beita sér fyrir því að um þetta fari enn á ný fram umræða í forsn. en það hefur gerst áður og mun hugsanlega gerast síðar. En forseti undirstrikar þó enn og aftur að auðvitað er það ráðherrann sjálfur sem fyrst og síðast ber ábyrgð á svörum. Þannig er það og þannig á það að vera.