Svar við fyrirspurn

Þriðjudaginn 07. mars 2000, kl. 13:54:00 (4980)

2000-03-07 13:54:00# 125. lþ. 73.96 fundur 361#B svar við fyrirspurn# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 73. fundur, 125. lþ.

[13:54]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vísar til þess sem hann sagði áðan að svör ráðherra eru fyrst og síðast á þeirra eigin ábyrgð. Forseti vill hins vegar ekki víkjast undan því að taka þær ábendingar sem hér hafa fram komið upp á vettvangi forsn. og það mun verða gert.