2000-03-13 15:07:26# 125. lþ. 77.92 fundur 370#B ummæli forsætisráðherra í umræðu um starfsemi og fjárreiður stjórnmálasamtaka# (aths. um störf þingsins), MF
[prenta uppsett í dálka] 77. fundur, 125. lþ.

[15:07]

Margrét Frímannsdóttir:

Virðulegi forseti. Þetta er eitthvað á misskilningi byggt hjá hæstv. forsrh. Ég var hér og hlýddi á ræðu hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur og hlustaði reyndar á ræðu hæstv. forsrh. á skrifstofu minni. Eftir því sem ég best veit var ég á mælendaskrá þegar málinu var frestað og ætlaði að svara þessum fullyrðingum sem og öðrum þegar málið kæmi aftur á dagskrá.