Hjálmar Árnason (andsvar):
Herra forseti. Það þarf ekkert að fara í grafgötur með það að út úr skýrslunni má lesa --- og það er það sem kom fram í máli mínu og hv. þm. hefur e.t.v. misskilið --- að meginmarkmiðið sem menn settu sér með þessum lögum var að draga úr --- eða hefur komið fram reyndar hvert meginmarkmiðið er og það hefur ekki náðst --- kvótakaupum sjómanna og ná sátt um verðmyndunina. Það er það sem ég var að vísa til. Ég stend enn við það og ég hygg að flestir geti verið sammála því að þau meginmarkmið hafa ekki tekist. Hvað varðar Kvótaþingið kemur það fram að skýrsluhöfundur telur að sú aðferð, þessi blindu uppboð, séu ekki rétta aðferðin og hvetur til þess að menn taki frekar mið af því sem gengur og gerist hjá Verðbréfaþinginu þannig að það verði opnara, eins og hv. þm. Jóhann Ársælsson las upp. En aðalatriðið er þetta að meginmarkmiðin hafa ekki náðst. Það er meginniðurstaða.