Jón Bjarnason (andsvar):
Herra forseti. Ég minni á rökin fyrir þessari heimild til úthlutunar 1.500 tonna kvóta. Hún átti að vera varanleg lausn á atvinnuvanda ákveðinna byggðarlaga. Þær forsendur geta breyst frá ári til árs. Það byggðarlag sem stóð sterkt í fyrra getur orðið veikt í ár, svo mikil er óvissan í þessu.
Ég spyr, herra forseti: Verða forsendur, staða byggðarlaganna innbyrðis í landinu, skoðaðar með tilliti til úthlutunar á þessum byggðakvóta? Það hljóta að vera hinar eiginlegu forsendur. Lítið væri að marka það að Byggðastofnun hafi til og með fiskveiðiárinu 2005--2006 árlega til ráðstöfunar 1.500 þorskígildislestir nema það sé á grundvelli stöðu einstakra byggðarlaga. Síðan síðasta úthlutun fór fram hafa önnur byggðarlög komist í mjög mikinn vanda. Það gæti þess vegna verið forsenda þess að endurskoða þetta.