Sigríður Jóhannesdóttir:
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Margréti Frímannsdóttur fyrir þessa fyrirspurn og hæstv. ráðherra fyrir forvitnileg svör, getur maður sagt. Ég var við umræðuna í febrúar 1998 og tók þátt í henni. Þar komu fram þessar skelfilegu upplýsingar um ástand hússins að Ljósheimum sem Margrét Frímannsdóttir kom hér með inn í þingið og náttúrlega sló menn kalda því þarna er um að ræða húsnæði sem er á einu mesta jarðskjálftasvæði landsins. Þarna er alltaf yfirvofandi hætta. Ég gat ekki betur skilið ráðherra þá en að það ætti að hefjast handa bara þá þegar, helst í gær, við nýbyggingu á hjúkrunarheimili á Selfossi. Síðan virðast hafa verið bundin blýlóð við alla útlimi þeirra sem að þeim framkvæmdum stóðu þannig að nánast ekkert hefur verið gert og nú er verið að byrja á samkeppni. Ég harma þennan seinagang. Ég get ekki annað sagt, hæstv. forseti.