Gísli S. Einarsson (andsvar):
Herra forseti. Ég vil þakka fyrir skýr svör hæstv. utanrrh. við þeim spurningum sem ég setti fram og sérstaklega fyrir það að hæstv. ráðherra svaraði því til að ekki sé verið að grípa inn í gerða samninga.
Varðandi 11. gr. sem fjallar um skattaákvæði þá veit ég ekki nákvæmlega hvernig skilgreiningin er á skattlagningunni en ég tel bara að öll þjónustustörf sem unnin eru vegna veru varnarliðsins eigi að vera skattskyld samkvæmt íslenskum reglum, jafnvel þó að hermenn framkvæmi þau störf, nema um beina hermennsku sé að ræða. Þetta er bara það sem ég er að ræða um. Ég er að draga pínulítið í efa að skilgreiningin sé nægjanlega góð, en það eru þjónustustörf sem eru framkvæmd af hermönnum sem eru við störf á varnarsvæðinu.
Ég reikna ekki með að hæstv. utanrrh. hafi eignað mér aronsku þó ég velti fyrir mér þessum þáttum. Ég tel að mörg þjónustustörf unnin af hermönnum, ættu Íslendingar að vinna. Ég tel það.
Ég fer fram á það, hæstv. forseti, að við frv. verði bætt ákvæði sem hljóði eitthvað á þá leið að fyrirtæki sem sýnt hafa fram á það í raun að þau hafi getu til þess að versla við eða veita varnarliðinu þjónustu skuli hljóta tilnefningu utanrrh. Ég fram á að þetta taki hv. utanrmn. til skoðunar og að hæstv. utanrrh. skoði hvort ekki sé rétt að þetta ákvæði fylgi með.