Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Þetta hefur verið löng og mikil umræða um umhverfismál sem tengjast veru varnarliðsins hér á landi og ég tel að þetta hafi verið ágæt og nauðsynleg umræða. Ekki ætla ég að halda því fram í lok umræðunnar að þarna sé allt í lagi. Ég vil ekki að mál mitt sé skilið þannig að svo sé. Þarna hefði margt mátt betur fara.
Hv. þm. nefndi aðstæður á Straumnesfjalli. Ég kom þangað og gekk þar um húsarústir og skoðaði þær fyrir tveimur árum, ekki vegna þess að ég gerði mér sérstaklega ferð þangað sem utanrrh. heldur sem áhugamaður um útivist. Ég tel að þar hafi verið skilið afar illa við. Þær eignir voru seldar eftir því sem ég best veit og einstaklingar tóku við þeim eignum. Þar var að sjá m.a. afganga af skjalasafni stöðvarinnar, sem ég vænti að sé nú ekki mikið af hernaðarleyndarmálum í, en það hafði hvorki verið brennt eða fjarlægt.
Hitt er svo annað mál að þegar gengið er um þessar eyðibyggðir er svipuð sjón á öðrum stöðum og af öðrum ástæðum, t.d. Hvalstöðin nokkru innan við Hesteyri, ekki svo óskaplega langt sunnan við. Þar eru rústir sem eru ekki fagrar að sjá og falla ekki inn í umhverfið. Það eru vissulega minjar um fyrri tíma, ef minjar skyldi kalla, eða leifar sem eru ekki til fyrirmyndar víða á landinu. Það á ekki eingöngu við um veru varnarliðsins eða veru Breta hér á landi á sínum tíma. Auðvitað eru þessar rústir á Straumnesfjalli að eyðast smátt og smátt vegna þess að þar eru mikil veður og þær munu að einhverju leyti hverfa umfram það sem nú er.
Það er leitt til þess að vita að geta ekki gengið betur um á Heiðarfjalli. Það er mikil ástæða til að hreinsa þar betur til. Sama má segja um Stokksnes, það hefur dregist allt of lengi að ganga þar frá málum og verður reynt að bæta úr því. Ég vil því alls ekki gera lítið úr þeirri sjónmengun sérstaklega sem víða er. En að því er varðar mengun í jarðvatni og í jarðvegi þá er það nú svo að sjálfsagt leynist einhver mengun í jarðvegi í kringum þessar stöðvar og ég þekki vel til þess hvernig gengið var um úrgang og sorp á Stokknesi á sínum tíma. Þar var einfaldlega öllu sturtað í sjóinn hvað svo sem það var og rak það á fjörur og inn um Hornafjörð og inn um eyjar og út um sund. Þessi úrgangur var oft og tíðum leikföng barnanna þannig að þetta var svo sem ekki til mikillar fyrirmyndar.
En þannig var gengið frá málum á þessum tíma. Þeir aðilar sem þarna störfuðu voru ekkert einir um það. Íslendingar gengu ekki betur um land sitt og umhverfi. Þeir voru ekkert betri. Þetta var bara tákn þess tíma og svona var gengið um á þessum tímum. En þarna hefur sem betur fer orðið mikil breyting á og mikilvægt er að reyna að hreinsa sem best til á þessum svæðum.
En ég bið hv. flm. að muna að það á líka við um ýmislegt annað í landinu sem tengist ekki endilega veru varnarliðsins. Varnarliðið er ekki eini aðilinn sem hefur einhvern tíma gengið illa um land okkar. Þess vegna vil ég ekki skilja við umræðuna án þess að á það sé bent. Við þurfum að ræða þessi mál út frá sjónarmiði umhverfismála en ekki að því er varðar afstöðuna til varnarliðsins eða afstöðuna til Atlantshafsbandalagsins. Það finnst mér vera allt annað mál.
En ég vil sem utanrrh. ganga fram í því að reyna að bæta þarna úr eftir því sem hægt er. Sumt er þannig vaxið að við höfum tekið málið að okkur eins og á Straumnesfjalli. Þessar eignir hafa verið seldar. Ef þar á að hreinsa til umfram það sem þegar hefur verið gert þá verður væntanlega að gera það á kostnað okkar Íslendinga sjálfra, svo að það sé ljóst. Ég tel að það verði ekki sótt á hendur þeirra aðila sem þar voru á sínum tíma.
Ég vil svo að lokum þakka fyrir umræðuna sem ég tel að hafi verið nauðsynleg og vonandi varpað nokkru ljósi á ástand þessara mála.