Afturköllun þingmála

Mánudaginn 20. mars 2000, kl. 15:02:08 (5441)

2000-03-20 15:02:08# 125. lþ. 82.92 fundur 392#B afturköllun þingmála#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 125. lþ.

[15:02]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur tilkynning um að fsp. á þskj. 734, 458. mál, um póstdreifingu í dreifbýli, hafi verið kölluð aftur. Fsp. er frá Ísólfi Gylfa Pálmasyni. Enn fremur hefur borist tilkynning um að fsp. til sjútvrh. á þskj. 616, 361. mál, um áhrif laga nr. 12/1998 á íslenskan sjávarútveg hafi verið kölluð aftur. Sú fsp. er frá Svanfríði Jónasdóttur.