Smíði nýs varðskips

Mánudaginn 20. mars 2000, kl. 15:33:07 (5462)

2000-03-20 15:33:07# 125. lþ. 82.1 fundur 391#B smíði nýs varðskips# (óundirbúin fsp.), GHall
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 125. lþ.

[15:33]

Guðmundur Hallvarðsson:

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmrh. fyrir svörin. Ég held að allir Íslendingar geri sér grein fyrir mikilvægi málsins bæði með tilliti til, eins og ég gat um áðan, stækkunar fiskiskipastólsins og þeirra starfa sem Landhelgisgæslan sinnir þegar slys og aðrir voveiflegir atburðir eiga sér stað. Það er gott að heyra að málið er senn í höfn. Ég þakka fyrir þetta svar.