Jóhann Ársælsson (andsvar):
Hæstvirtur forseti. Ég tek eftir því að Vinstri hreyfingin -- grænt framboð talar mikið um að tengja við byggðirnar og jafnvel við einstaka bæi. Ég hef einfaldlega áhuga á að fræðast um hvernig menn hugsa sér að tengja veiðiréttindin við og ákveða hve mikið menn eigi að fá að veiða, hvernig eigi að skipta veiðiréttindunum á milli manna sem eru í útgerð þar sem menn eru að tengja þetta við byggðirnar. Ég endurtek spurningu mína frá því áðan hvort Vinstri hreyfingin -- grænt framboð er sammála því sem kemur fram í, að mig minnir, 7. lið í tillögum frá Frjálslynda flokknum um það að bjóða veiðiheimildir upp. Síðan hef ég mikinn áhuga á því að vita hvernig menn hugsa það og hvernig menn geta fundið réttlátari leiðir til að láta menn hafa veiðiréttindi á grundvelli þeirra markmiða sem þarna eru sett fram um eflingu bátaútgerðarinnar og eflingu fiskvinnslunnar og hvernig beri þá að velja menn til að veiða þennan fisk. Er það kannski hugmyndin að einhvers konar útboð verði á þessum veiðiheimildum? Eða á þetta að fara eftir einhverjum hugmyndum um það hvernig hafi verið staðið að veiðum fyrr á tímum eða á að miða við síðustu ár? Það er ekki björgulegt í sumum byggðum ef það yrði gert. Á að skilja þetta þannig að menn geri bókstaflega ráð fyrir því að svo verði gert? Það er grundvallarspurning hvort þeim verði áfram mismunað sem sækja sjó á Íslandsmiðum.