Svar við fyrirspurn

Þriðjudaginn 21. mars 2000, kl. 13:36:15 (5507)

2000-03-21 13:36:15# 125. lþ. 83.92 fundur 394#B svar við fyrirspurn# (aths. um störf þingsins), JB
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 125. lþ.

[13:36]

Jón Bjarnason:

Herra forseti. Ég geri mér alveg grein fyrir því eftir því sem hæstv. menntmrh. lýsir hér að það þarf að stafa þetta greinilega og ítarlega þannig að það sé alveg ljóst. Ég vonast til þess að hæstv. forseti leyfi mér að leggja þá þær spurningar fram. Ég fæ svo aðra til að lesa þær yfir þannig að hæstv. ráðherra geti svarað þeim á fullnægjandi hátt.