Svar við fyrirspurn

Þriðjudaginn 21. mars 2000, kl. 13:36:50 (5508)

2000-03-21 13:36:50# 125. lþ. 83.92 fundur 394#B svar við fyrirspurn# (aths. um störf þingsins), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 125. lþ.

[13:36]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Ég veit ekki hvort ég geti svarað á fullnægjandi hátt. Við það set ég fyrirvara. En ég get ekki svarað öðrum spurningum en þeim sem fyrir mig eru lagðar og því verður að leggja þær fram mjög skýrt til að fá fram skýr svör. Þetta eru það almennt orðaðar spurningar að svörin standast fyllilega gagnrýni þegar litið er á spurningarnar.