Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir ræðu sína þó mér fyndist hún dálítið neikvæð í garð þessa frv. En mér fannst hv. þm. ekki gera sér grein fyrir eða ekki tala eins og hún teldi þá kínamúra sem frv. kveður á um skipta miklu máli því að mjög mörg af þeim atriðum sem hún kom inn á eiga að leysast með þeim kínamúrum sem þarna er verið að koma upp.
Hv. þm. talaði fyrst um meðferð trúnaðarupplýsinga. Um það er það að segja að við í viðskrn. erum að fylgjast með þeirri þróun sem hefur átt sér stað í löndunum í kringum okkur núna á síðustu vikum og mánuðum og í ráðuneytinu er ákveðin vinna í gangi sem tengist því. Ég vil láta það koma fram að ekki er ólíklegt eða það gæti alveg komið til greina að ástæða væri til þess að bæta inn í frv. ákvæði í meðförum þingsins sem sneri að þessu atriði, a.m.k. hvað það varðar að opna á reglugerðarsetningu í framhaldi af vinnu í nefnd og á hv. Alþingi.
Hv. þm. nefndi aðkomu starfsmanna að útboðum og talaði um innherjaviðskipti í Búnaðarbankanum. Þar held ég að hv. þm. sé að tala um gagnrýniatriði sem komu upp í tengslum við útboðið sem Verðbréfaþing ákvað að beina ekki til Fjármálaeftirlitsins. Því máli er lokið og Verðbréfaþing taldi að ekki hefði verið um innherjaviðskipti að ræða og því er ekki meira um það að segja.
Það var fleira sem hv. þm. nefndi. Hún talaði einnig um að hugsanlega mætti banna kaup starfsmanna eftir ákveðinn tíma frá afkomubirtingu og það er atriði sem ég kom einmitt inn á þegar við fjölluðum um þetta mál áður og taldi að kæmi til greina. Það er eitt af þeim atriðum sem þarf að skoða frekar en ég tel þó að kínamúrarnir, sem þetta frv. kveður á um, eigi að duga án þess að þessu verði beint komið fyrir í lögum. Það er þannig með mjög mörg atriði að með því að koma á þessum aðskilnaði á starfssviðum og að setja verklagsreglurnar í þann farveg sem kveðið er á um þá erum við að styrkja þetta fyrirkomulag mjög mikið. Ég tala ekki um með því að Fjármálaeftirlitið, eins og allir vita, þurfi að staðfesta verklagsreglurnar. Síðan er það mál fyrirtækjanna að hafa eftirlit með þeim. Það er hið innra eftirlit sem heyrir beint undir stjórnir sem á að sjá um það.
Hv. þm. nefndi upplýsingagjöf og nefndi Orca-hópinn sérstaklega í því sambandi. Fjármálaeftirlitið hefur heimild til þess að fá þær upplýsingar og fékk þær upplýsingar í því tilfelli sem hv. þm. talar um, eftir því sem ég best veit. En almennt vil ég leggja mikla áherslu á að Fjármálaeftirlitið starfar algjörlega sjálfstætt. Það er ekki hlutverk mitt sem viðskrh. að hafa eftirlit með Fjármálaeftirlitinu þó að það heyri undir viðskrn. í stjórnsýslunni. Ég legg mikla áherslu á þetta og ég vil lýsa því yfir að ég ber fullt traust til Fjármálaeftirlitsins og tel að það hafi verið að vinna mjög gott verk núna á síðustu vikum. Hv. þm. verður að hafa skilning á því að ég er ekki að stjórna Fjármálaeftirlitinu.
Hv. þm. talaði um brot á verklagsreglum sex fyrirtækja sem hefur komið fram opinberlega að um sé að ræða. Fjármálaeftirlitið hefur farið með það mál og er með sum þeirra enn til athugunar. Það er ekki hlutverk mitt að greina nákvæmlega frá því hvaða fyrirtæki þetta eru frekar en gert hefur verið í fjölmiðlum og ég tel að einmitt í þessu máli hafi verið brugðist við. Ég vil enn einu sinni láta það koma fram að það hafi verið í fullu samræmi við það sem er hlutverk Fjármálaeftirlitsins.