Húsgöngu- og fjarsölusamningar

Þriðjudaginn 21. mars 2000, kl. 16:00:02 (5536)

2000-03-21 16:00:02# 125. lþ. 83.15 fundur 421. mál: #A húsgöngu- og fjarsölusamningar# (heildarlög) frv. 46/2000, viðskrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 125. lþ.

[16:00]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tel sjálfsagt að efh.- og viðskn. fylgist með starfi þessarar nefndar. Ég reikna með því og tel alveg fullvíst að nefndin fái allar þær upplýsingar sem hún þarf á að halda við umfjöllun þessa máls og ráðuneytið hefur tök á að veita henni.