Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Mig langaði aðeins að koma hér upp til að þakka fyrir þær góðu undirtektir sem þetta litla frv. fær á hv. Alþingi. Mig langar til að láta það koma fram að þau orð hv. þm. Svanfríðar Jónasdóttur eða það frumkvæði sem hún hafði að því að taka þetta mál upp á hv. Alþingi með fyrirspurn fyrr í vetur hafði nokkur áhrif á að þetta mál er núna komið í frumvarpsform og komið hér til umfjöllunar. Ég held að það sé ágætt að láta það koma fram að það geti verið svo að stjórnarandstaðan bendi á mál sem eru mikilvæg og ýta við ráðherrunum.