Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi

Þriðjudaginn 21. mars 2000, kl. 23:33:12 (5604)

2000-03-21 23:33:12# 125. lþ. 83.5 fundur 236. mál: #A Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi# frv. 16/2000, Frsm. ÞKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 125. lþ.

[23:33]

Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef raunar mína skoðun á mótmælunum í Seattle og hv. þm. Ögmundur Jónasson hefur eflaust sína skoðun á þeim og hugsanlega aðra. Ég treysti hins vegar engum betur til að meta og skrá í þennan upplýsingagrunn en einmitt lögreglumönnum, þeim færu lögreglumönnum sem við höfum hér á Íslandi. Ég treysti þeim fyllilega til að sinna starfi sínu og því hlutverki sem þeim er falið í þessu frv.