Ísólfur Gylfi Pálmason (andsvar):
Herra forseti. Þegar ég hlustaði á ræðu hv. þm. þá missti ég af orðunum: ,,oft ekki hæfileika sinna``. En það á auðvitað við um fjölmarga aðra starfsmenn í öðrum rekstrarformun að þeir njóta oft ekki hæfileika sinna einhverra hluta vegna og eftir stendur sú spurning í sjálfu sér. Við getum vissulega leikið okkur að því að ræða þetta á heimspekilegan hátt, hvort starfsmenn njóti oft ekki hæfileika sinna o.s.frv. Það fer ekki alltaf eftir rekstrarforminu. Ég veit sem fyrrverandi kennari að það er dálítið erfitt að koma á einhverri ákvæðisvinnu eða kaupauka eða einhverju slíku inn hjá kennarastéttinni og það er í raun og veru erfitt að finna þann farveg. Ég ætla því ekki að munnhöggvast lengur við hv. þm. um þetta. En það kemur í ljós að rekstrarformið skiptir ekki höfuðmáli í þessu.