Smásala á tóbaki

Þriðjudaginn 04. apríl 2000, kl. 17:22:36 (5908)

2000-04-04 17:22:36# 125. lþ. 89.16 fundur 368. mál: #A smásala á tóbaki# þál., Flm. ÞBack (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 89. fundur, 125. lþ.

[17:22]

Flm. (Þuríður Backman):

Herra forseti. Ég mæli fyrir þáltill. um að smásala á tóbaki verði háð leyfisveitingu. Auk mín eru flm. þessarar þáltill. Bryndís Hlöðversdóttir, Einar K. Guðfinnsson, Jón Kristjánsson og Margrét K. Sverrisdóttir. Tillagan er svohljóðandi:

,,Alþingi ályktar að í heilbrigðisreglugerð verði ákvæði um sérstakt skilyrt leyfi til að selja tóbak.``

Í grg. kemur fram að skaðsemi tóbaks er óumdeild. Þrátt fyrir að nokkuð hafi dregið úr tóbaksnotkun á undanförnum áratugum, ekki síst vegna mikils og markviss áróðurs, eru reykingar engu að síður algengar eins og fram hefur komið í fjölda kannanna. Kannanir hafa einnig sýnt að reykingar barna og unglinga færast í aukana og færast neðar í aldurshópa, einkum hjá ungum stúlkum.

Samkvæmt nýjum upplýsingum tóbaksvarnanefndar má ætla að íslenskir grunnskólanemendur hafi varið liðlega 110 millj. kr. til tóbakskaupa árið 1999. Öll sú tóbakssala er ólögleg enda er bannað samkvæmt lögum nr. 74/1984, sbr. 8. gr. laga nr. 101/1996, að selja fólki undir 18 ára aldri tóbak. Af þessum 110 millj. kr. má ætla að nemendur í 8. bekk, 13 ára, hafi keypt sígarettur fyrir rúmlega 12 millj. kr. Því yngri sem unglingar byrja að reykja, þeim mun háðari verða þeir tóbaki og því líklegra er að þeir reyki sem fullorðnir. Því yngri sem einstaklingur er þegar hann byrjar að reykja, þeim mun líklegra er einnig að hann hljóti af alvarlegan heilsufarslegan skaða. Yfir 80% allra reykingamanna byrja að reykja áður en þeir ná 18 ára aldri.

Þá er þess einnig að geta að talin er sterk fylgni milli tóbaksreykinga ungmenna og hættu á að þeir leiðist út í neyslu annarra og enn hættulegri vímuefna. Því hefur verið haldið fram að takist að koma í veg fyrir að unglingar reyki eða neyti áfengis eru nánast engar líkur til þess að þau ánetjist sterkari fíkniefnum. Samkvæmt ársskýrslu frá SÁÁ reykja yfir 95% þeirra sem leita sér aðstoðar vegna áfengisvandamála og er næsta fátítt að sá sem verður eiturlyfjum að bráð reyki ekki. Því er ljóst að mikils er um vert að allra leiða sé leitað til þess að draga úr reykingum almennt og þó sérstaklega reykingum barna og unglinga.

Í upplýsingum frá tóbaksvarnanefnd, sem birtar voru í janúar árið 2000, kemur fram að u.þ.b. 26,6% Íslendinga á aldrinum 18--69 ára reyki daglega en það er um fjórðungur Íslendinga á þessum aldri. Notkun vindlinga er langalgengust eða 74,6% í hópi þeirra karla sem reykja og 96,6% í hópi kvenna sem reykja.

Af því sem hér hefur verið rakið má ráða að með því að draga úr möguleikum --- einkum unglinga --- til að nálgast tóbak væri stórt skref stigið í þá átt að draga úr reykingum barna og unglinga. Af könnunum sem gerðar hafa verið m.a. í Reykjavík og nágrenni má ráða að í u.þ.b. 70% tilvika geti unglingar undir 18 ára aldri keypt sígarettur í verslunun og söluturnum. Víða vantar því mikið á að verslanir sem selja tóbak framfylgi lagaákvæðum um bann við sölu þess til þeirra sem eru yngri en 18 ára. Leiða má líkur að því að ef sölustöðum tóbaks fækkaði yrði mikilvægt skref stigið til þess að draga úr reykingum unglinga. Samhliða leyfisskyldu á smásölu tóbaks þyrfti að auka eftirlit til muna en það er tæplega nokkurt eins og málum er háttað nú.

Í skoðanakönnun sem Hagvangur gerði fyrir tóbaksvarnanefnd árið 1999 kom fram að meiri hluti fólks, eða 56%, er mjög hlynntur eða frekar hlynntur því að fækka sölustöðum tóbaks. Athyglisvert er að sjá að rúmlega 43% þeirra sem reykja daglega eru hlynntir því að sölustöðum verði fækkað.

Þingsályktunartillögur um sama efni og hér er fjallað um hafa verið fluttar á undanförnum þingum. Þær hafa ekki hlotið brautargengi þrátt fyrir að augsýnilega sé þörf róttækra úrræða til að stula að því að lagaákvæðum um sölu tóbaks verði framfylgt.

Hér er farin sú leið að leggja til að í heilbrigðisreglugerð, sem er nú unnið að, verði sett ákvæði um að til þess að selja tóbak þurfi sérstakt leyfi. Lagt er til að leyfi til tóbakssölu verði tímabundið, t.d. til þriggja ára í senn, en skilgreind ákveðin viðurlög ef um brot á reglunum er að ræða. Þá sé einnig skýrt að leyfi til tóbakssölu verði ekki endurnýjað ef sannað er að brotið hafi verið verulega eða ítrekað gegn lagaákvæðum um sölu tóbaks.

Herra forseti. Ég vil geta þess að fyrir heilbrigðisnefnd Bandaríkjaþings liggur tillaga um leyfisskyldu til að selja tóbak og í þeirri tillögu er líka lagt til að það verði mjög öflugt eftirlit með sölunni, samanber með áfengissölu í Bandaríkjunum. Þar er eftirlitið mjög strangt og mjög hörð viðurlög ef fólki undir leyfilegum aldri er selt áfengi. Ef tekið yrði upp þetta kerfi sem hér er verið að leggja til, að það þurfi sérstakt leyfi til að selja tóbak eins maður þarf leyfi til að selja áfengi, þá gætu sjoppur, veitingastaðir, verslanir og aðrir sem selja þær í dag, sótt um þetta leyfi. Ef söluaðilar verða uppvísir að því að selja börnum og unglingum undir 18 ára aldri missa þeir leyfið eða fá sekt og missa síðan leyfið ef um ítrekuð brot er að ræða. Eins og þetta er í dag þá er þetta brotið því að 70% unglinga undir 18 ára aldri þar sem könnun hefur verið gerð var hreinlega selt tóbak. Á mörgum stöðum voru þau ekki einu sinni spurð hvað þau væru gömul. Það þýðir ekki að hafa í lögum að ekki megi selja börnum og unglingum undir 18 ára aldri tóbak ef við höfum engin viðurlög við því eða framfylgjum þeim ekki, erum ekki með eftirlit og þó svo að það kæmi til einhverrar sektar eða verslunareigendur eða útsölustaðir fengju aðvörun þá væru þeir alveg vissir um að þeir mundu aldrei tapa af söluleyfinu. Þetta er að mínu mati og margra annarra eina leiðin til þess að herða tökin á eftirlitinu og forða því að börnum og unglingum undir 18 ára aldri sé selt tóbak.

Herra forseti. Ég legg til að tillögunni verði vísað til heilbr.- og trn.