Vörugjald af ökutækjum

Miðvikudaginn 05. apríl 2000, kl. 18:30:42 (5978)

2000-04-05 18:30:42# 125. lþ. 92.1 fundur 549. mál: #A vörugjald af ökutækjum# (lækkun gjalda) frv. 8/2000, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur, 125. lþ.

[18:30]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Í ábendingum mínum fólst engin tortryggni gagnvart bílaleigum hér á landi og ég treysti því í sjálfu sér að þær láti þessa verðlækkun koma fram í verðlagi sínu. En engu að síður er ástæða til að vera á varðbergi og fylgja einmitt þessum þáttum eftir út í gegn, hvort sem það er hæstv. samgrh. eða fjmrh., þeir sitja nú báðir í ríkisstjórn og þetta hlýtur að vera hluti af ríkisstjórnarákvörðuninni hvernig með þetta verður farið. En mikilvægt er að þetta komist endanlega til neytandans, ég vil árétta það og þakka fyrir undirtektir hæstv. fjmrh. í þeim efnum.