Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Með þáltill. þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2000 sem gengið var frá með orðsendingaskiptum í Reykjavík og Þórshöfn 2. og 22. febrúar í ár.
Samkvæmt samningi þessum munu aðilar semja fyrir 1. júlí 2000 um veiðiheimildir færeyskra nótaskipa á loðnuvertíðinni sem stendur frá júlí 2000 til apríl 2001. Er eins og í samningi landanna frá í fyrra við það miðað að veiðiheimildir færeyskra nótaskipa á þessu tímabili verði um 30 þúsund lestir enda breytist forsendur varðandi leyfðan heildarafla og önnur atriði er máli skipta ekki í verulegum atriðum.
Í samningnum er kveðið á um það nýmæli að færeyskum skipum er heimilt á loðnuvertíðunum 1999/2000 og 2000/2001 að veiða allt að 10.000 lestir af loðnu á hvorri vertíð innan lögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.
Samningurinn gerir enn fremur ráð fyrir gagnkvæmri heimild skipa hvors aðila til kolmunnaveiða innan lögsögu hins á árinu 2000.
Loks er í samningnum staðfest heimild íslenskra skipa til veiða á allt að 1.300 lestum af makríl og 2.000 lestum af síld annarri en norsk-íslenskri innan færeyskrar lögsögu á árinu 2000.
Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vísað til hv. utanrmn.