Hjálmar Jónsson (andsvar):
Herra forseti. Ég vil aðallega þakka fyrir ágætar hugleiðingar hv. þm. Þuríðar Backman. Hún sagði að gæðastýringarkerfið væri flókið og samningurinn allur og að gæðastýringarkerfið gæti orðið bákn í úrvinnslunni. Ég hef satt að segja hugleitt það líka og ég held að það séu varnaðarorð í tíma töluð að þess þurfi sérstaklega þurfi að gæta að gæðatýringarkerfið verði ekki flókið eftirlitskerfi. Þar ræður miklu hvernig úrvinnslan mun verða á næstunni um þetta þegar menn eru að setja sig í stellingar til þess að fara að vinna samkvæmt samningnum. Það kann líka að vera að samningurinn allur sé flókinn en ég hygg nú að menn ráði alveg við það að átta sig samt á því. Ég heyri það á ræðum stjórnarandstæðinga hér í dag að þeir hafa sett sig vel inn í málið og ráða alveg við að skilja þetta og ég veit að það gera bændur líka.
Þegar hæstv. landbrh. sem nú er í Kína --- ég segi nú ekki að hann sé að kenna þeim að mjólka, sem flogið hefur þó fyrir --- kom frá því að kynna samninginn í þingflokki þeirra framsóknarmanna þá sagði hann: ,,Þetta er góður samningur. Það skilja hann ekki nema greindustu menn.``
Bændastéttin er nú þannig að hún á auðvelt með að skilja samninginn og taka ákvarðanir. Ég held því að það sé rétt sem hv. þm. Þuríður Backman segir að þeir bændur sem hyggjast hætta munu selja strax og þess vegna held ég að uppkaupatilboðið verði fljótt uppfyllt í þessum 45 þúsund ærgildum þannig að þá er komin frjáls sala á greiðslumark miklu fyrr en 2004.