Þorgerður K. Gunnarsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég er alveg hissa á hv. þm. Svanfríði Jónasdóttur, sem er fulltrúi löggjafarvaldsins, að fagna ekki þessari aðferð hjá dómsmrh. að leyfa þinginu að móta jafnmerkilegar reglur og reglur um stjúpættleiðingar samkynhneigðra eru. Fyrir mitt leyti er ég mjög ánægð með það sem hæstv. dómsmrh. er að gera með framlagningu þessa frv. því að í rauninni er ekki verið að gera neitt annað með því en það sem stendur nákvæmlega í frv., þ.e. að rýmka þessi skilyrði til að stofna til staðfestrar samvistar. Það er nákvæmlega það sem verið er að gera, ekkert annað.