Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um veiðieftirlitsgjald. Frv. er unnið eftir heildarendurskoðun á gjaldtökuákvæðum laga er heyra undir sjútvrn. Hún var gerð til að tryggja betur samræmda gjaldtöku og skýrleika gjaldtöku\-ákvæða. Í frv. eru lagðar til ýmsar breytingar í þessu skyni. Frv. felur ekki í sér breytingar á fjárhæð gjalda að öðru leyti en því að fjárhæðir í gildandi lögum eru uppfærðar miðað við breytingar sem gerðar hafa verið með reglugerð vegna vísitölubreytinga.
Lagt er til að ein heildarlög verði sett um veiðieftirlitsgjald en í dag eru ákvæði um gjald vegna veiðieftirlits dreifð í fleiri lög. Með einum heildarlögum um gjald vegna veiðieftirlits má tryggja betur skýra og samræmda gjaldtöku. Lagt er til að grundvöllur veiðieftirlitsgjalds vegna úthlutaðra aflaheimilda verði lögfestur með skýrari hætti en nú er. Grunnfjárhæð gjaldsins, sem ákvörðuð hefur verið með reglugerð, verður lögfest, sem og útreikningsaðferð verðmætahlutfalla einstakra tegunda sem gjaldið miðast við. Veiðieftirlitsgjaldi er ætlað að standa undir kostnaði Fiskistofu við veiðieftirlit. Grunnfjárhæð gjaldsins hefur verið ákvörðuð með hliðsjón af því og þeim þáttum sem gjaldið byggist á, þ.e. úthlutuðu aflamarki og verðmætahlutföllum milli tegunda. Þar sem þessir þættir eru breytilegir má gera ráð fyrir að breyta þurfi grunnfjárhæð gjaldsins reglulega. Þar sem almennt liggur ekki fyrir hver hámarksafli botnfisks verður fyrr en í júlímánuði er nauðsynlegt að leggja til breytingar á álagningartíma gjaldsins. Í stað þess að gjaldið leggist á við úthlutun veiðiheimilda í upphafi fiskveiðiárs er lagt til að það leggist á 1. desember ár hvert. Gefst þá tækifæri til að endurskoða grunnfjárhæð gjaldsins með tilliti til ákvarðaðs hámarksafla og verðmætahlutfalla einstakra tegunda. Vegna breytinga á álagningartíma gjaldsins þykir eðlilegt að miða við það sem skip fengi úthlutað miðað við aflahlutdeildarstöðu þess þegar gjaldið er lagt á. Innheimta gjaldsins hefur verið trygg þar sem úthlutun veiðiheimilda hefur ekki farið fram nema gjaldið hafi fyrst verið innt af hendi. Þessi trygging verður ekki lengur fyrir hendi ef gjalddagi þess verður 1. desember ár hvert. Er því lagt til að skip verði svipt veiðileyfi verði gjaldið ekki greitt og gjaldið tryggt með lögveði í viðkomandi skipi.
Þá eru í frv. þessu lagðar til nokkrar breytingar sem er ætlað að tryggja samræmda álagningu gjalds. Helst er að nefna að lagt er til að orðalagi gildandi laga verði breytt svo að heimild til álagningar veiðieftirlitsgjalds nái til útgáfu hvers konar veiðiheimilda innan fiskveiðiárs eða veiðitímabils. Er í því sambandi sérstaklega höfð í huga úthlutun krókaaflamarks og aflahámarks til veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum.
Auk framangreindra breytinga er í samræmi við þá stefnu ríkisstjórnarinnar að afnema sjálfvirka breytingu gjalda til að sporna við þenslu í hagkerfinu lagt til að vísitölubinding gjaldsins verði afnumin.
Hæstv. forseti. Ég hef rakið efnisatriði frv. og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. sjútvn.