Landsvirkjun

Mánudaginn 10. apríl 2000, kl. 15:03:01 (6255)

2000-04-10 15:03:01# 125. lþ. 96.1 fundur 198. mál: #A Landsvirkjun# (aðild að fjarskiptafyrirtækjum) frv. 14/2000, RG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur, 125. lþ.

[15:03]

Rannveig Guðmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Samfylkingin mun sitja hjá við atkvæðagreiðsluna. Hjáseta Samfylkingarinnar byggir á málsmeðferð í iðnn. Hins vegar finnst okkur þingmönnum Samfylkingarinnar í iðnn., þeirri er hér stendur og Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, mjög jákvætt að nefndin ætlar að taka málið aftur fyrir og við teljum að í nefndinni verði að fara yfir tillögugreinina og hugsanlega komi til greina að leggja fram brtt. við hana. Við munum sitja hjá við atkvæðagreiðsluna en skoða málið ásamt fulltrúum í iðnn. á ný.