Ábúðarlög

Mánudaginn 10. apríl 2000, kl. 17:30:37 (6278)

2000-04-10 17:30:37# 125. lþ. 96.28 fundur 239. mál: #A ábúðarlög# frv. 21/2000, Frsm. HjálmJ
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur, 125. lþ.

[17:30]

Frsm. landbn. (Hjálmar Jónsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frhnál. um frv. til laga um breytingu á ábúðarlögum, nr. 64/1976, með síðari breytingum.

Hv. landbn. ákvað að taka málið til frekari umfjöllunar eftir að því hafði verið vísað til 3. umr. og leggur nefndin til að frv. verði samþykkt með þeirri breytingu að 1. efnismgr. 1. gr. orðist svo:

,,Þegar leiguliðaskipti verða á jörðum og ekki liggur fyrir samkomulag milli aðila um skiptin skal framkvæma úttektir á jörðunum og mat á eignum og endurbótum fráfarandi ábúanda.``

Hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en Pétur Bjarnason áheyrnarfulltrúi sat nefndarfundinn og er samþykkur þessari afgreiðslu.

Undir nál. rita sá sem hér stendur, Einar Már Sigurðsson, Drífa Hjartardóttir, Jónína Bjartmarz, Guðjón Guðmundsson, Einar Oddur Kristjánsson, Þuríður Backman og Katrín Andrésdóttir.