Kosningar til Alþingis

Þriðjudaginn 11. apríl 2000, kl. 23:11:23 (6414)

2000-04-11 23:11:23# 125. lþ. 97.23 fundur 522. mál: #A kosningar til Alþingis# (heildarlög) frv. 24/2000, ArnbS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 97. fundur, 125. lþ.

[23:11]

Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég er í sjálfu sér ánægð með að heyra að hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon tekur undir þessi rök. En að því er ég best man átti hann sæti í þessari nefnd og hefur væntanlega skoðað þetta plagg eins og aðrir nefndarmenn og tekið afstöðu út frá því og á þá væntanlega m.a. þann frumvarpstexta sem hér liggur fyrir.