Hjálmar Árnason:
Herra forseti. Hvort vindur er mældur í metrum á sekúndu, með hári á höfði, fingri á lofti eða huglægri orðanotkun einstaklinga, þá breytir það ekki þeirri einföldu staðreynd að vindur mun áfram blása og fólk mun áfram ræða um vind eftir aðstæðum og hugarástandi. Stjórnsýsluaðgerð breytir engu þar um. Ég tel þess vegna að þáltill. sé í raun óþörf. Hitt er svo annað mál hvort ágætt starfsfólk Veðurstofunnar geti tekið þetta brýna vandamál til úrlausnar. Það er mér að meinalausu. Það kann að hafa skemmtanagildi og skerpa tunguna en ég mun ekki greiða tillögunni atkvæði.