Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Þegar gengið var frá þeirri bókun sem í gildi er milli Íslands og Bandaríkjanna um varnar- og öryggismál árið 1996 var ánægja með þá niðurstöðu bæði af hálfu Bandaríkjanna og Íslands. Við erum lítilega farnir að undirbúa þessi mál og við gerum ráð fyrir því að við þurfum að endurnýja bókunina með einum eða öðrum hætti á næsta ári og að formlegar viðræður að því er það varðar hefjist á næsta hausti.
Ég geri ekki ráð fyrir á þessu stigi að einhverjar stórkostlegar breytingar verði í þessum málum. Engin efni standa til þess en ég get í sjálfu sér ekki upplýst meira um það mál nú. Við þurfum að átta okkur betur á því hvað Bandaríkjamenn vilja í þessum efnum. Við höfum markvisst verið að reyna að draga úr kostnaði við rekstur stöðvarinnar og nokkur árangur hefur orðið í þeim efnum og sú viðleitni mun halda áfram. Eins og kunnugt er er víða verið að reyna að spara og ekki síst á þessu sviði útgjalda ríkja. Ég tel ekki ástæðu til að fara um það fleiri orðum því að línur eru alls ekki farnar að skýrast í þessum efnum.