Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessi svör og geri mér grein fyrir því að það er erfitt að hnika til textanum sem varð til í þessari þríhliða nefnd. Sama þríhliða nefnd hefur reyndar haft þetta mál uppi á borðum sínum frá því að hún varð til, held ég, og við erum að fagna því hér í dag að endanlega hafi náðst samkomulag um að koma þessari frumvarpsgrein inn í þingið. Við skulum hins vegar gera okkur grein fyrir því að hægt er að hengja sig í orðið ,,eingöngu`` ef menn kjósa svo. Það er talsverður munur á því að segja ,,fjölskylduábyrgð sem slík`` og ,,óheimilt er að segja manni upp störfum eingöngu vegna fjölskylduábyrgðar``.
Við 1. umr. málsins benti ég á að þetta skapar ákveðna hættu á því að menn segi: Ja, það var nú fleira, ekki eingöngu fjölskylduábyrgð. Hafi barn verið mikið veikt og foreldri frá vegna þess væri hugsanlega hægt að koma sér fram hjá því, að það væri ekki eingöngu verið að losa sig við starfsmanninn af því að barnið væri búið að vera lengi veikt og starfsmaður mikið frá.
Þess vegna hefði ég kosið að þetta orð ,,eingöngu`` hefði ekki verið í frumvarpsgreininni. Þetta er svipað svar og kom fram hjá félmrh. við 1. umr. Ég vildi bara athuga hvort nefndin hefði skoðað þetta og ég þakka fyrir svörin.