Gjaldtökuákvæði nokkurra laga á sviði sjávarútvegs

Miðvikudaginn 26. apríl 2000, kl. 12:14:04 (6647)

2000-04-26 12:14:04# 125. lþ. 102.18 fundur 544. mál: #A gjaldtökuákvæði nokkurra laga á sviði sjávarútvegs# (breyting ýmissa laga) frv. 34/2000, Frsm. EKG
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 125. lþ.

[12:14]

Frsm. sjútvn. (Einar K. Guðfinnsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 1030 um frv. til laga um breytingu á gjaldtökuákvæðum nokkurra laga á sviði sjávarútvegs frá sjútvn.

Með frumvarpinu er lagt til að skýrar verði kveðið á um grundvöll og fjárhæðir gjalda en gert er í núgildandi lögum. Er einnig til samræmingar lagt til að þróunarsjóðsgjald miðist við hvers konar aflaheimildir innan árs en eins og ákvæðið er orðað í núgildandi lögum miðast það ekki við aflahámark og krókaaflamark. Loks felur frumvarpið í sér minni háttar lagfæringar á orðalagi og tilvísunum. Ekki eru lagðar til breytingar á fjárhæð gjalda að öðru leyti en því að þau verði uppfærð miðað við breytingar á byggingarvísitölu í samræmi við breytingar sem gerðar hafa verið með reglugerð, samkvæmt heimild í gildandi lögum.

Auk framangreindra breytinga er, í samræmi við þá stefnu ríkisstjórnarinnar að afnema sjálfvirka breytingu gjalda til að sporna við þenslu í hagkerfinu, lagt til að vísitölubinding gjaldsins verði afnumin.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Auk formanns og framsögumanns rita undir nál. hv. þingmenn Kristinn H. Gunnarsson, Hjálmar Árnason, Guðmundur Hallvarðsson, Árni Ragnar Árnason, Vilhjálmur Egilsson, Guðjón A. Kristjánsson, Svanfríður Jónasdóttir og Jóhann Ársælsson.